Júlíana

10.01.2010 16:22:53 / juliejolly

Farin! Búið! Bless!

Farin á Moggabloggið! Nýtt ár! Nýtt blogg!

www.julie.blog.is


Ætla að prófa þetta allavega, sjáum til hvernig það gengur, gæti vel verið að ég endi bara aftur hérna á gamla góða BlogCentral, en ég ætla að vera nýjungagjörn á þessu ári!;) Svo ég er farin... allavega í bili!:)

Júlíana Moggabloggari:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 18:04:43 / juliejolly

Gleðilegt nýtt ár (eftir 6 tíma)! :-P



Takk fyrir árið sem er að líða:)


Júlíana


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2009 08:32:34 / juliejolly

Bug-móment ársins...

Mánudagur eftir jólafrí... viðbjóðslega þreytt dreg ég mig fram úr rúminu eftir um 2 tíma svefn, fer í bað á meðan ég væli inn í mér yfir því að þurfa virkilega að draga mig fram úr svona snemma til að mæta í vinnuna. Fer úr baðinu, þurrka á mér hárið, vek Lenu sem gisti hjá mér í nótt, öfunda hana innst inni á að geta farið að sofa aftur eftir smá, fylgi Lenu til dyra, fer út í kaldann bílinn sem er að verða bensínlaus, keyri af stað upp í vinnu í kuldanum, labba inn... og kemst að því að ég átti að mæta klukkan 13:15!!!!!!!!!!! BUG!!! BUG!!! BUUUG!!!!!

Keyrði heim, vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða vera pirruð, sit núna upp í rúmi og veit ekki hvort ég ætti að fara að sofa aftur eða bara halda mér vakandi fyrst ég er búin að vakna og fara í bað og allan pakkann. Þetta var bugandi...


Júlíana


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2009 01:48:31 / juliejolly

Útskrift á morgun!

Jæja, þá er ég að útskrifast úr einkaþjálfaraskólanum á morgun kl 12:00! Ekki leiðinlegt það! Búin að ná prófinu og skila inn skýrslunni og allt það vesen og þá bara útskrift! Var reyndar spurð í vinnunni hvort það væri þá ekki partý... og ég var ekki einu sinni búin að spá í því hvort ég ætti ekki að halda eitthvað upp á þetta. Frekar lélegt, eh? En ég held að ég nenni því ekkert, held bara upp á það með því að fara út að hlaupa í vonda veðrinu eða eitthvað:p Líka nýbúin að halda partý, varla búin að taka almennilega til eftir (eða jú kannski), hélt staffapartý síðustu helgi, nýtti mér það að vera ein heima og svona;) Búin að vera ein heima í rúmar 3 vikur núna, pakkið kemur heim á morgun... held það verði smá sjokk að fá allt í einu eitthvað annað fólk í húsið mitt! Orðin vön að vera bara ein í rólegheitunum og fílaði það bara mjög vel!:haha:

Annars verður frekar mikið að gera hjá mér á morgun, útskriftin mín kl 12, útskrift hjá Jakobínu úr Borgó kl 14, svo eitthvað... sækja mömmu og Stebbu upp á flugvöll um kvöldið og svo boðin í 5 partý... sjáum til hversu mörg ég næ að mæta í, stefni á a.m.k. 4! Ætla nú samt líklega að vera mest með Jakobínu á útskriftardeginm, kellan orðin stúdent!;)

Núna ligg ég bara heima róleg upp í rúmi og hlusta á vindinn úti... og er ekkert rosalega leið yfir því að hafa beilað á djammi sem ég ætlaði að fara á í kvöld, veðrið ekki alveg að heilla mig akkúrat núna!:p Lena hélt sem sagt smá get together heima hjá henni í kvöld (það sem hún er á landinu núna, wúhú!:D) og við duttum nokkrar í matinn og vínið, en beiluðum svo á djammi. Ég held ég sé ekkert mjög tipsy ennþá... en það kemur líklega í ljós þegar ég les þessa færslu yfir á morgun... ef stafsetningarnar verða skuggalega háar... þá er ég með afsökun!:lol:

Smá gullkorn úr vinnunni um daginn:

Ég: *Að segja eitthvað geðveikt fyndið að mínu mati*
Barn (sem fattaði ekki djókið): Júlíana... veistu hvað...
Ég: Hvað?
Barn: Sko... þú ert fyndin... en samt bara stundum:|...

Hahaha hún meinti þetta svo innilega að ég gat ekki annað en grátið úr hlátri í svona 5 mínútur:lol:




Júlíana, hinn stundum fyndni einkaþjálfari:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2009 22:34:59 / juliejolly

Prófið á morgun!

Lokaprófið í einkaþjálfaranáminu er á morgun og ég er bara rétt búin að líta yfir þetta, finnst margt af þessu svo pointless að læra að ég fer í fýlu og hætti að læra. Mér er ALVEG SAMA hvað vöðvarnir í andlitinu heita á latínu thank you very nicely! Sé ekki hvernig það tengist einkaþjálfun? Nei ég bara spyr!

Ég fer alltaf að gera eitthvað allt annað eftir svona korter af lestri... held ég ætti kannski að skella mér í ADD test? En ef ég fell þá er það alveg á hreinu að það mun vera gítarnum, píanóinu og Facebook að kenna! En nei nei, ég fell ekkert, ég kann alveg það sem mér finnst skipta máli í þessu (og kunni reyndar fyrir því ég hef oft legið yfir einhverju svona þjálfunardæmi á netinu). Og ef ég fell á því að sökka í latínu þá bara... þá bara... já... verð ég geðveikt fúl og kasta eggi í kennarann eða eitthvað skemmtilegt? Finn kannski út hvað egg er á latínu og öskra það meðan ég kasta? Held það sé gott plan. Ég veit hvað gluteus maximus er og mér finnst það nóg.

Svo eftir prófið verður staffaparteeey heima hjá mér, like á það! Þá mun ég annað hvort vera að halda upp á það að verða orðin einkaþjálfari eða tossi, skiptir ekki máli, ég mun djamma úr mér alla latínu either way!

Egg á latínu er ovum... ég er undirbúin...



En jæja... ég á víst að vera að læra... bless!


Júlíana ovumkastari


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2009 14:18:58 / juliejolly

Af hverju man maður ekki draumana betur?

Ég var að semja alveg geðveikt lag í nótt! Verst er að ég var sofandi og man ekki alveg textann en hann var heví góður! Gítarspilið var heldur ekki slæmt! Ég þarf að reyna að setjast niður við tækifæri og rifja upp þetta snilldar lag sem ég samdi í draumnum! Þetta skal sko niður á blað!

Maður man samt alveg fáránlegustu drauma, ef þeir eru nógu silly þá man maður þá, en þá sem maður vill muna er ekki séns fyrir mann að geta rifjað upp daginn eftir! Ég man samt brot og brot og ætla að koma þessu lagi á gítarinn minn! Ekki leiðinlegt að geta bara samið meðan maður er sofandi, ekkert að þurfa að hafa fyrir því að vesenast fram og til baka að reyna að finna texta og hvernig lagið á að vera, kemur bara til manns í draumi, ég er að fíla það!

Annars var ég auli í gær og gleymdi að fara með lyfin til ömmu eins og ég þarf að gera á föstudögum, svo að ég ætla að drífa mig núna! Túdúlú!




» 6 hafa sagt sína skoðun

02.12.2009 23:53:54 / juliejolly

Aloe Vera

Jæja... þá ætla ég að fara að einbeita mér að Aloe Vera! Ég er víst söluaðili og ekki alveg búin að vera að standa mig hingað til, en ætla að fara að draga alla á kynningu til mín á næstunni!;) Og ÞÉR er boðið!

Oj...

Þreytt...

Nenni...

Ei...

Að...

Blogga...

Ég...

Fara...

Að...

Læra...

Bless:haha:





» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2009 01:38:28 / juliejolly

Fór í ræktina og varð fyrst geðveikt fúl, aftur fúl, svo mjög sátt!

Já ég var ekkert of sátt á æfingu í dag... allavega ekki í byrjun! Ég hef ekkert haldið mér í einhverju góðu cardio formi eftir að ég meiddist í mjöðminni 1700 og súrkál... eða í fyrra... og hætti að geta hlaupið og svona, en ég ætla að vinna það upp núna! Þar sem ég mætti of seint í Hot Yogað í WC á Seltjarnarnesi og var búið að loka salnum, þá fór ég bara í tækjasalinn. Ég ákvað að vera geðveikt kjörkuð og skella mér í svona innbyggt "fit test" á hlaupabrettinu sem tekur bara 5 mín og brettið segir manni hvort maður rúli eða sökki. Ég sökka. Brettið tilkynnti mér að ég væri "Below Average"! Ég var illa svekkt! Vildi nú að minnsta kosti vera Average þó ég sé ekki búin að vera að æfa! Þannig ég gaf brettinu bara ljótt lúkk og fór í burtu.

Ég ákvað að taka sama prófið á þrekhjólinu líka, sannfærði sjálfa mig um að ég hafi nú aldrei verið eitthvað sérstaklega góð að hlaupa en yfirleitt geta stungið alla af á hjólinu (minnist alltaf greyið Rakelar sem dröslaðist með mér upp á Seltjarnarnes og til baka, hún og harðsperrurnar hennar hötuðu mig í marga daga eftir á, hún hefur neitað að hjóla með mér síðan). Ég skellti mér sem sagt mjög vongóð á hjólið og hjólaði í þessar 5 mín... og... Below Average! Ég var þá bara farin að sætta mig við að ég sökki og sé komin úr öllu formi.

Ég var svo á skíðavélinni og ákvað að taka þetta próf þar líka, bara svona gamni... láta enn eitt tækið segja mér að ég sé aumingi. Þá bara er skíðavélin mega sátt með mig og segir "Very Good"! Ég segi henni nú bara að þetta sé einhver misskilningur í henni, hin tækin hafi sagt að ég væri það léleg að ég ætti bara að hætta að reyna og breytast í sófagrænmeti heima bara. Ég ákvað að taka prófið aftur á skíðavélinni... og jú jú... Very Good!

Djöfull er ég fljót að koma mér í form! Geng inn sem aumingi, geng út í mega formi. Það er gott að vera ég.



Hér má sjá breytinguna á mér á þessum eina og hálfa tíma sem ég var þarna, ekki slæmt, eh?



Júlíana, the very good one:haha:



» 8 hafa sagt sína skoðun

14.11.2009 17:03:43 / juliejolly

Julie einkó

Jæja, þá mun ég byrja að einkaþjálfa á morgun! Spennandiii! Ég var látin fá konu sem heitir Steinunn, eins gott að hún standi sig í stykkinu, ætla sko að láta hana bæta sig! Svo ég fái nú ekki falleinkunn fyrir þetta!:p Ég fékk bol hjá kennaranum áðan, stendur Einkaþjálfaraskóli á honum, voða smart... nema hann átti  hann bara eftir í L, þannig ég henti honum í þvottavélina og gerði einhvern fjandann, bíð svo spennt eftir því að sjá hvort að hann minnki í þvotti eða ekki!:) Mæti svo á morgun upp í Spöng í allt of litlum bol og öskra á konuna einhverju mjög hvetjandi meðan hún gerir æfingarnar sem ég set henni fyrir, like!:haha:




Júlíana:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2009 16:17:03 / juliejolly

Hræðilegur bílamánuður?

Ég er ekki að fíla þennan mánuð hvað varðar bílamálin! Eitt dekkið er búið að springa hjá mér og ég þurfti að vera geðveikur massakall og skipta um dekk á bílnum, bara deginum eftir að ég set hann á nagladekkin by the bye! Ég segi að dekkið hafi verið gallað því það var mjööög skrýtið að keyra bílinn heim af verkstæðinu og svo er það bara flatt daginn eftir! Ætla að vera með vesen!:whut:

Svo er ég á leið í vinnuna í fyrradag, bíllinn vill ekki alveg starta sér og heldur því fram að hann sé bensínlaus. Ég hlusta nú ekkert á svoleiðis rugl þar sem bensínljósið var nú bara tiltölulega nýkviknað. Þannig ég drösla honum út botnlangann þar sem hann drepur svona 8 sinnum á sér, þá ákveð ég að ég muni nú bara leggja hjá gömlu 10-11 og reyna að fá Söndru til að skutla mér í vinnuna, en þá allt í einu virðist hann vera orðinn skárri og ég tek smá bjartsýniskast og ætla að ná honum upp á Olís til að taka bensín. Þannig ég legg af stað út úr Hamrahverfinu, svo sé ég... mér til mikillar skelfingar... að ég mun lenda á ljósunum á gatnamótum Hamrahverfisins og Olís. Að sjálfsögðu byrjuðu vandræðin aftur þar og bíllinn drepur á sér og neitar að fara í gang aftur... 10 metrum frá Olís! Vandræðalegasti staður ever til að verða bensínlaus! Ég kveiki þá bara á hættuljósunum og vona að jeppinn fyrir aftan mig færi sig svo ég geti látið bílinn renna út í kant og frá... en nei nei, kellingin var sko ekkert á því heldur bíbar bara 2-3 á mig! Hver bíbar á bíl sem er með kveikt á hættuljósunum!?:whut: Ég var orðin illa pirruð og það munaði ekki miklu að ég færi út úr bílnum og labbaði upp að rúðunni hjá henni og myndi senda henni ákveðið fingramerki alveg up close and personal. En sem betur fer gerði ég það ekki þar sem rétt í því kom ÍTR bíllinn keyrandi framhjá með samstarfsmönnum mínum í og nokkrum börnum úr Höllinni, þau voru að fara að sækja krakkana í Hamraskóla. Veit ekki hvort það hefði litið mjög vel út að keyra framhjá starfsmanni ÍTR að nota svona skemmtilegt táknmál, fired much?:lol: Berglind kom til mín til að tékka hvað væri í gangi og svo hljóp ég upp á Olís og náði í bensín og kom mér í vinnuna, þar sem ÍTR bíllinn var að koma á sama tíma og ég... og það var klappað mjög skemmtilega fyrir mér þegar ég kom:).

Bílaævintýri mín eru ekki búin, þar sem í gær fór ég í vinnuna og allt í góðu, svo þegar ég ætla að fara heim þá bara verð ég aftur bensínlaus!:o Ég fattaði þetta nú ekki alveg þar sem ég setti um 5 lítra á hann þegar ég var bensínlaus deginum áður og var lítið sem ekkert búin að keyra síðan, þannig ég var ekki sátt og hélt að hann væri bara að verða eitthvað bilaður og byrjaði að bölva mikið með geðvonskusvipinn í hámarki. Varð sem sagt bensínlaus á miðri götu við hliðina á Egilshöllinni í þetta sinn, mjög gaman!:) Hljóp upp á bensínstöð með brúsann frá því í gær og reddaði þessu, orðin pro í þessu öllu saman!:haha:

Núna er ég búin að FYLLA bílinn og ætla sko ekki að verða bensínlaus á næstunni thank you very nicely!

Góða helgi!:)

Júlíana umferðarblocker:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.10.2009 20:40:22 / juliejolly

,,Áttu græna sokka!?!?"

Þessa setningu öskraði ég í símann í vinnunni í dag þegar ég var að tala við hana Söndru. Það var svolítið öðruvísi dagur í vinnunni í dag, allir krakkarnir í fríi og það var lokað í Höllinni (frístundaklúbbnum), en okkur starfsmönnunum úr öllum frístundaklúbbunum þrem var sagt að mæta stundvíslega kl 13:00 hjá klukkunni á Lækjartogi, og við gerðum það. Þá vorum við sett í Amazing Race leik um borgina í leit að hinu og þessu. Þar á meðal grænum sokkum, spældu eggi, ljósaperu, blönduðum djús (þetta kom Sandra allt með til mín niður í bæ haha, takk Sandra!;)), notað tyggjó, ís og fleira. Áttum svo að taka mynd af okkur hópnum með einhverjum frægum, mér datt í hug að fara í Þjóðleikhúsið og spyrja hvort við mættum ekki troða okkur þar inn í smá stund og taka eina mynd. Fórum þangað og jú jú, konan í miðasölunni sagði okkur að fara bakvið Þjóðleikhúsið og þar inn, við gerðum það en þá voru þau öll bara nýfarin á fund svo við misstum af þeim. Það var einn hópur á undan okkur sem fékk sömu hugmynd og við og náðu áður en liðið fór á fund, fóru upp á svið og læti! Svekkjandi!:p En við ætluðum bara að labba út í fýlu og finna einhvern frægan einhverstaðar annarsstaðar, þá bara mætum við Eddu Björg úr stelpunum á leiðinni út og erum geðveikt happy að sjá hana! Hún skildi ekkert í þessum fagnaðarlátum í okkur fyrst, en leyfði okkur svo að taka mynd;).

Svo var ýmislegt annað sem við áttum að gera, t.d. gera eitthvað góðverk (keyptum 200 kr styrktarspjald í 10-11 að styrkja börnin í Afríku), taka mynd af einhverjum úr hópnum að kyssa gamla konu, sópa götuna einhverstaðar, búa til plaggat um fötlun (fengu allir hóparnir sitthvora fötlunina, við vorum með downs, þetta þurfti nú líka að vera eitthvað fróðlegt;)), tína blómvönd og svo það besta... láta einhvern hlaupa á nærbuxunum niður Laugaveginn. Valli tók það að sér og gerði það með style á meðan gömul hjón ráku upp stór augu þegar hann kom hlaupandi framhjá!:lol: Þeim fannst það svo bara mjög fyndið þegar ég útskýrði fyrir þeim að við værum að gera verkefni;).

Fólk lagði mismikið effort í þetta, en ég held að Eva hafi toppað allt. Hópurinn hennar átti eitthvað erfitt með að finna græna sokka... svo þau fundu grænan túss í staðinn og þ.a.l. á Eva ekki jafn marga hvíta sokka í dag og hún gerði í gær!:)

Góður dagur!:D

Júlíana:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.10.2009 12:20:16 / juliejolly

Greyið Kubbur

Þá er hann Kubbur litli minn dáinn. Hamsturinn sem ég tók heim þegar ég var að vinna í Dýraríkinu því pabbi hans réðst á hann þegar hann var bara pínu lítill, tók hann heim til að halda lífi í honum og tímdi svo ekki að fara með hann aftur í búðina. Hann var orðinn svona tveggja og hálfs árs þannig hann var ekkert unglamb greyið, og ég var búin að taka eftir breyttri hegðun hjá honum þannig mig grunaði að hann ætti ekki mikið eftir:(.

Eins og flestir vita þá er ég algjör aumingi þegar það kemur að dýrum... en er normal að fara að gráta eins og krakki þegar maður er 20 ára og hamsturinn manns deyr?:p Svo er jarðarförin í dag, greyið greyið Kubbur minn!:cry:



» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2009 23:02:30 / juliejolly

Undirmeðvitundin mín hatar nágrannann minn

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi, en innst inni hef ég greinilega eitthvað rosalega mikið á móti einum nágrannanum mínum. Mig er búið að dreyma núna tvisvar með frekar stuttu millibili að ég ráðist á hann í einhverju pirringskasti:|, mjög svipaðir draumar meira að segja. Hann er eitthvað að þvælast í kring um mig og það er bara nánast eins og ég bíði eftir að fá tækifæri til að snappa á hann, svo gerir hann eitthvað pínu lítið og ég læt til skara skríða! Ríf hann til og frá og helli mér duglega yfir hann og fæ þvílíkt kikk út úr því by the way. Svo hvæsi ég á fjölskylduna hans þegar þau ætla eitthvað að skipta sér af og yrða á mig, ég stend bara föst á mínu og er geðveikt ógnandi við alla sem voga sér að líta á mig. Kem því sko alveg til skila að ég hati greyið gaurinn.

Veit ekki alveg af hverju mig er að dreyma þetta, ég vissi ekki að ég hefði neitt á móti honum, búin að þekkja hann heillengi (þori varla að segja hver þetta er því hann eða einhver sem hann þekkir gæti séð þetta blogg haha), hann hefur nú ekkert gert mér blessaður. Nema í draumnum mínum auðvitað... t.d. núna í nótt þá vogaði hann sér að vera eitthvað að fikta í rólunum mínum gömlu sem eru hérna út í garði, hann mun sko ekki gera það aftur á næstunni í draumalandi ef hann veit hvað er gott fyrir hann!

Mig dreymdi líka fyrir ekkert svo löngu að ég hafi ráðist á eina stelpu sem ég þekki, og það var líka út af einhverju svona litlu sem ég nýtti mér bara til að snappa. Þrír ofbeldisdraumar með frekar stuttu millibili... hvað er í gangi!:o Ég held að ég sé ill inn við beinið... ILL!




Júl-ill-ana:klikk:


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 18:54:46 / juliejolly

Skúle og sprojta!

Jæja hér sit ég í tíma í einkaþjálfaraskólanum (er í pásu auðvitað, samviskusamur nemandi sem hlustar með fulla einbeitingu þegar kennarinn talar) í líffærafræði. Það er alveg ágætt en samt ekkert á miðað við tímann í gær! Þá var sálfræði í tvo tíma og íþróttasálfræði í 2 tíma, og VÁ ég hefði getað hlustað á manninn tala endalaust! Elskaði það! Ég hef aldrei verið í sálfræðitíma áður þó að ég sé búin að ákveða að ég ætla að fara í ensku og sálfræði í háskólanum, held ég hafi fengið ágæta staðfestingu á því í gær að þetta er eitthvað fyrir mig. Var eiginlega OF happy jolly eftir tímann, var spurð hvort ég væri á spítti eða einhverju álíka hollu... ég verð hyper þegar ég er happy!;) Get bara varla beðið eftir að byrja í HÍ núna!:D

Fleiri góðar (vonandi) fréttir! Ég var í sprautu í morgun! Og ekkert lítilli sko! Skellti mér til Stefáns Dalbergs í gær, sem er læknirinn sem gerði hnéaðgerðina á mér þegar ég var 15 ára, út af mjöðminni og hann sagðist vilja sprauta mig. Ég var bara sátt með það, geðveikt ánægð að loksins væri kannski komin einhver laus eftir að hafa verið með þetta mjaðmavesen í eitt og hálft ár eða svo!:| Orðið pínu þreytandi verð ég að viðurkenna. Þannig ég mætti skælbrosandi í sprautu í morgun, hlakkaði meira að segja pínu til að fá sprautuna þar sem það er nett langt síðan ég fékk sprautu síðast... eins skrýtið og það hljómar kannski, þó svo að það fyrsta sem fólk fór að tala um þegar ég sagði að ég væri að fara í sprautu var stærðin á nálinni. Þetta var síðan ekkert gott skal ég þér segja! Risa sprauta sem hann jukkaði um þarna inn í mjöðminni á mér á auma svæðinu! Inn út, hægri vinstri, voða kósý. Svo þegar ég hélt ég væri búin, þá nei nei, önnur eins! Er svo hölt núna, voða tignarlegt!:) Þarf kannski að fara aftur eftir 3-4 vikur en við sjáum til hvernig þetta verður, wish me luck! Tíminn að byrja aftur! Bleee!

Júlíana á nálum:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.10.2009 19:43:56 / juliejolly

Einkaþjálfaraskólinn! :-D

Úff vá hvað tíminn líður! Allt of bissí þessa dagana! En það sem er helst í fréttum er allavega það að ég byrja loksins í einkaþjálfaraskóla World Class á mánudaginn!:D Weeeee!:D

Jæja meira síðar... ég sökka sem bloggari haha!

Bless!

P.S. Gullkorn hjá Söndru á laugardagskvöldi!

Sandra: Já það má alveg sofa hjá öðru fólki þó maður sé giftur, ég meina sumir eru mormónar eða hormónar eða hvað sem þetta heitir!

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  43  Alls: 84365
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 47 dögum
koma jóóóóliiiiin! :-D
Klukkan
Könnun
Jæja gott fólk, hvort er málið?

Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Leitarbox