Júlíana

30.11.2008 18:44:35 / juliejolly

Fyrsti í aðventu!

Já! NÚNA MÁ LÖGLEGA FARA AÐ SYNGJA JÓLALÖG! Aha!:haha: En annars hef ég EKKERT að segja! Já! Haha! Gaman af því! Ehhhh...

Ég ætla upp í bústað á eftir! Ekki er það merkileg frásögn! Öss... ég er orðin eins og Jay Leno! Talandi um það að það sem ég er að segja sé ekkert fyndið né áhugavert! Að ég sé komin niður á það level er grátlegt! Haaa... Kevin? Búrúmbúmm tsss! Hver er minn Kevin?:|:o

En ég held að það sé helst í fréttum að Rannveigu hefur LÍKLEGA tekist að sannfæra mig um að fara með á kóræfingu og öskra af öllum eyrun næsta þriðjudag... það verður upplifun!:$

En jiiiii ég er nenni ekki að hlusta á sjálfa mig lengur! Ekki það að ég sé að lesa allt upphátt sem ég er að skrifa en YOU GET THE POINT! FNEH!

Set bara inn einhverjar myndir sem voru teknar um helgina til að þessi færsla líti út eins og blogg! Blogglíki!


Tóný að vinna í því að verða full;)


Ég... hvítari en allt... og Antonía


Ég með skuggalegan glampa í augunum og Antonía orðin alveg bliiiind full eftir 2 sopa?


Rannveig í nýju úlpunni sinni!


Tóný og Rannveig hressar:) Nei... við nenntum ekki að taka myndir annarsstaðar en í bílnum!:lol:


Rannveig og ég í léttu sjúski:)


Farin! Bless!


Julie Leno!:|


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 04:53:55 / juliejolly

Búin í prófum 10. des!

Þá lifnar bloggið aftur við! Ég mun vera að DEYJA næstu daga... mun pott þétt lesa yfir mig í spænskunni þar sem... eeeehhmm... hæpoþetikklí spíkíng of kors... gætu sumir ekki hafa gert neitt í spænskufjarnáminu alla önnina og eru að fara að vinna heila önn upp á 11 dögum. Ekki éééég sko... neeei nei! Ééééég er svo gott barn!:haha:

Farin að sofa!

Góða nótt!

Julie englabarn sem lærir alltaf heima fyrir spænsku!:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 22:26:54 / juliejolly

ÉG NEITA AÐ BLOGGA

NEEEEEI!!!!!!!!!! Ég er búin að vera að gera videovesenverkefni í ár stanslaust! Þið fáið ekki lengra blogg!

Bless!!!

Kv.
Ein í hræðilegu skapi!

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 14:29:55 / juliejolly

Harðsperrur og smá öppdeit

Fyrir svona 2 dögum var ég að dreeeepast úr harðsperrum! Skil það ekki alveg því ég er búin að vera að deyja úr leti og ekki að gera neitt, að pikka inn þetta blogg er örugglega mesta hreyfingin sem ég hef fengið í marga daga enda er ég orðin lafmóð hérna. Skildi maður geta fengið harðsperrur þegar maður hættir allt í einu að hreyfa sig? Líkaminn sé bara búin að aðlaga sig að hreyfingunni þegar maður er búinn að hreyfa sig meira og minna á hverjum einasta degi svo allt í einu er bara allt búið! Það er annað hvort það eða ég hef tekið alveg rosalega kálfaæfingu í svefni og það bara alla nóttina því það þarf heilmikið til að ég fá harðsperrur!

En að öðru og skemmtilegra umræðuefni! Familían er farin til Boston með langan innkaupalista frá mér (sem ég fæ örugglega svona einn hlut af þökk sé kreppulúðanum), en ég hef þó allavega allt húsið bara fyrir mig, Bröndu, Essó, Lúllu, Kubb, Viktor (fiskinn sem sagt) og aðra ónefnda fiska. Gott að vera til núna! Partý partý partý!? Hoho! Pæling!;)

Annars hrundi tölvan mín á miðvikudaginn! Fun fun fun! Degi áður en ég átti að skila þessu blessaða enskuvideoi! Var langt komin að klippa það saman og scriptið og allt er í minni tölvu líka og þá auðvitað hrynur helvítis tölvan! Hún gat ekki beðið með það þangað til á fimmtudaginn! Neeeeeei! Auðvitað gerist þetta þegar ég þarf mest á tölvubeljunni að halda! Hér sit ég svo í borðtölvunni heima og pikka á háværasta lyklaborð sem ég veit um!

Svo var ég að kaupa nýja síma og ég er komin yfir í Nova! Eða verð allavega komin yfir 24. nóvember, tekur víst smá tíma að færast á milli kerfa. En þá geta allt Novafólk hringt frítt í mig! Og ég í ykkur! Múahahaha núna verð ég óþolandi!:haha: Hverjir eru í Nova!? Gefið ykkur fram!!!:D

Svo eru Rannveig og Antonía að reyna að draga mig með sér í kór... ehhh... sjáiði það ekki fyrir ykkur? Ég... í kór! Og ég er ekki búin... kirkjukór! Já... trúleysinginn ég í kirkjukór. Held það sé ekki alveg að fara að gerast!

Jæja ég er farin! Bless!


Júlíana

» 17 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 12:48:20 / juliejolly

Það eru...

...35 dagar til jóla!!!!!!!!:D:D:D:D:D

Falalalala lalalala!:D:D:D:D:D


Jólíana:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 01:29:33 / juliejolly

Tíminn flýgur!

Það er allt að gerast svo hratt hjá mér þessa dagana að mér finnst ég vera nýbúin að blogga, en nei nei... ég er minnt á að svo er ekki af dyggum blogglesurum mínum. Mikið að gera! Mun tala í stuttum setningum og jafnvel bara stikkorðum! Lena! 19 ára! Í dag vera!:D:D:D:D:D Jahh eða tæknilega séð í gær... en í U, S and A er enn þá 16. nóvember þannig Lena á afmæli enn þá!:D:D:D Til hamingju Lenulingur!:D Mamma á svo afmæli í dag að íslenskum tíma! 58 ára! Vá... ég er orðin gömul!

Annars langar mig að deila með ykkur gremju minni! Er að gera videoverkefni í ensku, og gövöööð þetta ætlar ekki að vera auðvelt fyrir mig! Þegar við erum búnar að taka þetta allt upp, þá fattar stelpan sem átti myndavélina að hún á ekki snúru til að setja þetta yfir í tölvu! Gleði. Svo var þetta víst alveg megamál að redda því... tókst bara ekkert... endaði á því að ég fór upp í Kópavog að reyna að redda snúru, sem gekk ekki. Þá fór ég til Antoníu að reyna að redda þessu... fékk aðra myndavél og snúru í láni frá pabba hennar og hélt að þetta væri að takast hjá mér en nei nei... tölvan mín vildi bara ekki fá myndbandið úr videokamerunni. Þá fór ég heim til hennar en tölvan hennar Tóný vildi bara ekkert með þetta myndband hafa heldur. Síðasti sénsinn er að ég nái að redda skólakameru og vona að hún geti sett þetta yfir í tölvuna mína á morgun! Sem þýðir að ég hef einn dag til að gera allt þetta heeeeelvítis drasl til! Ef þetta gengur ekki upp á morgun þá ætla ég bara að grenja úr mér augun fyrir framan Ástu kennara og biðja um frest vegna tæknilegra örðugleika... því það er sko EKKI það að ég hafi ekki reynt að redda þessu!:whut:

En jæja... ég ætla að fara snemma að sofa til tilbreytingar því ég þarf að vera vel hvíld á morgun til að geta gert ALLT þetta verkefni á einum degi... ohhhh guuuuði sé lof fyrir koffínið! Sagði trúleysinginn og fór að sofa!

Góða nótt!


Júlíana vandræða editor:|


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 21:12:38 / juliejolly

Ert þú heilheila eða hálfheila?

YOU ARE:


WHOLE BRAINED

Whole brained people are special!

You have the wonderful ability to balance the activities of both hemispheres of the brain.

You can be creative, and at the same time think and act logically.

Leonardo Da Vinci is an example of a famous whole-brainer:



Þar hafið þið það! Ég er special!:haha: Þetta er próf sem ég tók á Facebook, voða sniðugt! Gef ykkur linkinn á prófið hér að neðan... en þið verðið eiginlega að vera eitt af okkur töff fólkinu sem eru með Facebook til að geta tekið það! Þarna ættuð þið að sjá gelluna vera að snúast þarna eitthvað og svo meira líka! Ég sé hana snúast bæði rangsælis og réttsælis, þetta sem maður á að gera með hendurnar er ég með þumalinn á vinstri hendi fyrir ofan (hitt er bara rangt! Hver hefur hægri fyrir ofan! Vinsamlegast kynntu þig hérna í kommentunum og farðu svo og spyrðu einhvern hvort að mamma þín hafi verið að reykja eitthvað á meðgöngunni!), svo þetta með blýantinn þá er ég D! That makes me special people hoho!:haha:

Svo á eftir þessu prófi kemur bara beint í Are you an INTROVERT or an EXTROVERT prófið. Ég er introvert... vissi það nú fyrirfram!:)

Svo eftir því prófi kemur Do you have a MALE brain or a FEMALE brain prófið!

 You have a FEMALE brain!



The ratio of ring finger length to index finger length is determined by how much testosterone you were exposed to before birth.

Testosterone is primarily a male sex hormone required for the development of male reproductive organs and secondary male sexual characteristics such as facial hair, a deeper voice and more developed muscles.


Já já... svo er ég með svona konuheila, kemur ekkert mikið á óvart þar sem ég er líka whole brained... hvaða karlaheili gæti verið whole brained? Þeir geta bara gert eitt í einu svo þeir geta bara verið hálf brained!:lol: Það mun ekki ein einasta kona trúa ykkur strákar ef þið segist hafa fengið whole brained úr fyrra prófinu og Male Brain úr hinu prófinu!

Jæja! Þetta eru stutt og skemmtileg próf!:) Takið þau og látið mig vita hvað þið fenguð! Svo getum við whole brained fólkið haft fundi og samræður um það hvað við erum fjölhæf og special!:haha::lol:

En annars er ömurlegur dagur í dag! Ömurlegur! SkjárEinn felldi bara niður dagskránna sína í dag! Það versta við það er að í dag er fimmtudagur og House er á fimmtudögum!!! Hræðilegt að þetta sé fellt niður!!!:( 13. nóvember... hræðilegur dagur! Allir að klikka hér og skrifa undir þetta dæmi hjá SkjáEinum!

Svo linkurinn á prófin! Klikkaðu hér ef þú ert með þrjú eyru!

Óver and át!


Julie female whole-brainer:haha:

» 13 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 16:28:47 / juliejolly

Ég þarf að fara fyrr að sofa!

Þetta gengur ekki lengur!:o Ég er alltaf að sofa yfir mig! Ég get verið skæð í því en ég er alveg að slá öll met núna þessar vikurnar! Í dag var síðasti dagurinn sem ég mun sofa yfir mig á þessari önn! Já já! Ég ætla að standa við þetta!

Var að gera enskuvideo í gær í 12 tíma! 11 til 11! Þetta var pínu þreytandi á köflum sko! ÞVÍLÍKT effort sem fór í þetta!

Annars var ég að skutla mömmu eitthvað áðan... komum svo við upp á bensínstöð til að tékka á einhverju með perurnar hjá númeraplötunni og svona... gamli karlinn sem vann við þetta var bara að reyna við mömmu mína sko! Svo var peran ekki til og hann sagði að hún gæti keypt hana þarna og bleh bleh bleh og svo ef að hún vildi að hann myndi ganga frá þessu fyrir hana þá væri hann á kvöldvakt á morgun. Já... mömmu verður sko haldið heima á morgun! Því ég er ekki alveg til í einhvern sjötugan stjúppabba eða eitthvað thank you very nicely!

Bless!


Juleeey:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 12:15:06 / juliejolly

Ómögulegar appelsínur

Það er ekki hægt að borða appelsínur! Ekki reyna! Been there done that sko! Hvernig datt fólki eiginlega í hug upphaflega að þetta væri matur? Maður kemst ekki í gegnum börkinn án vopna, meðan maður reynir þá kreistist meira og minna allur safinn úr þessu skrapatóli yfir báðar hendurnar á manni sem eru yfirleitt með nokkur sár á þeim svo það verður bara vont, svo endar alltaf eitthvað í augunum líka. Þegar maður telur sig loksins vera búinn að ná berkinum af þá er samt helmingurinn af honum eftir sem tekur heila eilífð að ná af! Þetta hvíta þið vitið! Sum ykkar eruð í afneitun og borðið þetta hvíta en þetta er hluti af berkinum og skal af! Svo er fólk alltaf geðveikt smekklegt með tissue undir þegar það er að borða þessa hluti, sem er náttúrulega bara út í hött! Diskur myndi ekki einu sinni duga, né skál, það þarf helst bala fyrir allan þennan subbuskap!

Ég var búin að gleyma öllu þessu áðan... enda tók það mig næstum klukkutíma að borða morgunmatinn minn! Maður gleymir þessu alltaf á einhverra mánaða eða ára fresti og sannfærir sjálfan sig að maður geti borðað appelsínu tignarlega. Svo þegar maður reynir er maður bara skammaður af sparsömu og kreppumeðvituðu heimilisfólki þegar maður er kominn á sjötta tissue.

Fáið ykkur bara epli!


Júlíana klaufi:haha:



» 13 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 20:44:07 / juliejolly

Fólk og sambönd

Ég hef verið að pæla í einu... fólk og sambönd. Áhugavert umhugsunarefni þegar maður leggur sig fram í pælingum um það hvernig þetta er svona hjá lang flestum, svo ég tali nú fyrir mína kynslóð. Hvað verður maður að gera ef maður ætlar sér í samband? Jú jú, hitta eitthvað fólk. Hvar hittir maður yfirleitt nýtt fólk? Jú jú, yfirleitt er það á djamminu. Hvað gerir maður yfirleitt á djamminu? Jú jú, maður drekkur einn drykk og annan... og annan. Hvernig verður maður yfirleitt eftir nokkra (og svo rúmlega það) svoleiðis? Jú jú, gjörsamlega út úr heiminum, geðveikt fyndinn, aðlaðandi og áhugaverður að eigin mati. Svo þegar fólk er orðið það fullt að það gæti ekki gefið upp eigin kennitölu, þó það væri með hana skrifaða á svindlmiða, til að bjarga lífi sínu... þá getur það sko farið að reyna við fólk! Úr því verða svo ótrúlega oft sambönd og fólk er saman í marga mánuði, mörg ár, fara jafnvel að eignast börn saman og binda sig þannig hvort öðru að eilífu!

Svoleiðis er nú það! En... myndi maður fara í leit að segjum bara til dæmis gardínum í þessu sama ástandi? Nei! Því þá þarf auðvitað að vanda valið! Ekki vill maður sitja uppi með einhverjar hræðilegar gardínur inni í stofu þar sem allir geta séð þær!


Júlíana hugsuður:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 23:01:16 / juliejolly

Léttpirruð í bíó

Ég skellti mér á myndina Night in Rodanthe, hélt að þetta yrði alveg bara nánast The Notebook 2 eða eitthvað, varð fyrir smá vonbrigðum verð ég að segja, fannst svona eins og ég væri bara að horfa á mjög langan trailer um myndina, komst aldrei almennilega inn í hana. Líklega út af manninum sem sat fyrir aftan mig! Hann varð alveg hrikalega kvefaður allt í einu eftir hléið! Því miður kom það ekki náttúrulega hjá honum að sjúga upp í nefið og það kom alltaf þetta hrotuhljóð frá honum þegar hann reyndi... og það á svona sekúntu fresti! Langaði helst til að standa upp og segja honum að drulla sér inn á klósettin og snýta sér hressilega því þetta væri sko ekki að gera sig! Fékk svona pirringsklígju í hvert skipti sem hann gerði þetta! Urrrr!:whut: Svo allt í einu gerði annar karl nákvæmlega það sama sem sat aftar í salnum! Þeir voru farnir að fjölga sér! Ég hélt ég ætlaði að fara að gráta. Sem betur fer var þetta bara óvenjustutt mynd þannig ég náði að halda þetta út.

Góða helgi!


Júlíana ókvefaða:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  17  Alls: 86372
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 76 dögum
koma jóóóóliiiiin! :-D
Klukkan
Könnun
Jæja gott fólk, hvort er málið?

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox