Ég er ekki að fíla þennan mánuð hvað varðar bílamálin! Eitt dekkið er búið að springa hjá mér og ég þurfti að vera geðveikur massakall og skipta um dekk á bílnum, bara deginum eftir að ég set hann á nagladekkin by the bye! Ég segi að dekkið hafi verið gallað því það var mjööög skrýtið að keyra bílinn heim af verkstæðinu og svo er það bara flatt daginn eftir! Ætla að vera með vesen!

Svo er ég á leið í vinnuna í fyrradag, bíllinn vill ekki alveg starta sér og heldur því fram að hann sé bensínlaus. Ég hlusta nú ekkert á svoleiðis rugl þar sem bensínljósið var nú bara tiltölulega nýkviknað. Þannig ég drösla honum út botnlangann þar sem hann drepur svona 8 sinnum á sér, þá ákveð ég að ég muni nú bara leggja hjá gömlu 10-11 og reyna að fá Söndru til að skutla mér í vinnuna, en þá allt í einu virðist hann vera orðinn skárri og ég tek smá bjartsýniskast og ætla að ná honum upp á Olís til að taka bensín. Þannig ég legg af stað út úr Hamrahverfinu, svo sé ég... mér til mikillar skelfingar... að ég mun lenda á ljósunum á gatnamótum Hamrahverfisins og Olís. Að sjálfsögðu byrjuðu vandræðin aftur þar og bíllinn drepur á sér og neitar að fara í gang aftur... 10 metrum frá Olís! Vandræðalegasti staður ever til að verða bensínlaus! Ég kveiki þá bara á hættuljósunum og vona að jeppinn fyrir aftan mig færi sig svo ég geti látið bílinn renna út í kant og frá... en nei nei, kellingin var sko ekkert á því heldur bíbar bara 2-3 á mig! Hver bíbar á bíl sem er með kveikt á hættuljósunum!?

Ég var orðin illa pirruð og það munaði ekki miklu að ég færi út úr bílnum og labbaði upp að rúðunni hjá henni og myndi senda henni ákveðið fingramerki alveg up close and personal. En sem betur fer gerði ég það ekki þar sem rétt í því kom ÍTR bíllinn keyrandi framhjá með samstarfsmönnum mínum í og nokkrum börnum úr Höllinni, þau voru að fara að sækja krakkana í Hamraskóla. Veit ekki hvort það hefði litið mjög vel út að keyra framhjá starfsmanni ÍTR að nota svona skemmtilegt táknmál, fired much?

Berglind kom til mín til að tékka hvað væri í gangi og svo hljóp ég upp á Olís og náði í bensín og kom mér í vinnuna, þar sem ÍTR bíllinn var að koma á sama tíma og ég... og það var klappað mjög skemmtilega fyrir mér þegar ég kom

.
Bílaævintýri mín eru ekki búin, þar sem í gær fór ég í vinnuna og allt í góðu, svo þegar ég ætla að fara heim þá bara verð ég
aftur bensínlaus!

Ég fattaði þetta nú ekki alveg þar sem ég setti um 5 lítra á hann þegar ég var bensínlaus deginum áður og var lítið sem ekkert búin að keyra síðan, þannig ég var ekki sátt og hélt að hann væri bara að verða eitthvað bilaður og byrjaði að bölva mikið með geðvonskusvipinn í hámarki. Varð sem sagt bensínlaus á miðri götu við hliðina á Egilshöllinni í þetta sinn, mjög gaman!

Hljóp upp á bensínstöð með brúsann frá því í gær og reddaði þessu, orðin pro í þessu öllu saman!

Núna er ég búin að FYLLA bílinn og ætla sko ekki að verða bensínlaus á næstunni thank you very nicely!
Góða helgi!

Júlíana umferðarblocker